Samkvæmt breskum fjölmiðlum í dag mun varnarmaðurinn og fyrirliðinn John Terry skrifa undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í dag.
Eigandinn Roman Abramovich ákvað að verðlauna Terry með nýjum samningi eftir að hann ákvað að vera áfram hjá Lundúnafélaginu í stað þess að fara til Manchester City í sumar.
Með samningnum, sem er metinn á 41 milljón punda, verður hinn 28 ára gamli Terry með um 160 þúsund pund á viku og er þar með orðinn launahæsti leikmaður Chelsea og launahæsti leikmaður á Englandi ásamt Robinho hjá City.