Fótbolti

Terim: Ísland ber höfuð og herðar yfir önnur lið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fatih Terim, landsliðsþjálfari Tyrklands, segist þess fullviss að hans menn geti unnið Ísland í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016 á morgun.
Fatih Terim, landsliðsþjálfari Tyrklands, segist þess fullviss að hans menn geti unnið Ísland í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016 á morgun. Vísir/Getty
Fatih Terim, landsliðsþjálfari Tyrklands, segist þess fullviss að hans menn geti unnið Ísland í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016 á morgun.

Liðin eigast við hér í Konya í Tyrklandi en á blaðamannafundi í dag hrósaði Terim íslenska liðinu fyrir árangurinn, en Ísland er nú þegar búið að tryggja sæti sitt á EM.

„Ég vil fyrst og fremst óska Íslandi til hamingju með sitt fyrsta sæti á stórmóti í knattspyrnu. Ég vil óska þjálfurunum Lars Lagerbäck og Heimi Hallgrímssyni til hamingju sem og allri íslensku þjóðinni.“

„Liðið bar höfuð og herðar yfir önnu lið í riðlinum, líka Tékkland. Þeir eiga virðingu skilda,“ sagði Terim en Ísland er í efsta sæti riðilsins með einu stigi meira en Tékkland.

Tyrkland er í þriðja sætinu en þarf stig til að gulltryggja það og sæti í umspilinu í næsta mánuði. Holland er skammt undan og á enn möguleika á þriðja sætinu með sigri á Tékklandi á morgun.

Terim segir að það séu þrjár mögulegar niðurstöður á morgun. Að Tyrkland tapi og komist ekki áfram, að Tyrkir nái að minnsta kosti stigi og að liðið fari í umspil eða að liðið vinni og fari beint áfram í keppnina, verði úrslit annarra leikja hagstæð.

Liðið sem nær bestum árangri í þriðja sæti fer beint á EM en önnur lið fara í umspil í næsta mánuði.

„Við viljum auðvitað þriðja möguleikann. Þetta er tækifæri sem við viljum alls ekki missa af og ég vona að það verði að veruleika að við förum beint áfram. Við erum þess fullvissir að við getum unnið leikinn.“

Terim, rétt eins og Arda Turan fyrirliði, vottað samúð allra í landsliðinu með fórnarlömbunum ódæðanna í Ankara og fjölskyldum þeirra.


Tengdar fréttir

Litla Ísland er haldreipi hollensku stjarnanna

Íslensku landsliðsstrákarnir þurfa bara að treysta á sig sjálfa í baráttunni um toppsæti A-riðils undankeppni EM 2016 þrátt fyrir að hafa misst Lettaleikinn niður í jafntefli um helgina. Íslenska liðið var ósigrað á Laugardalsvelli í undankeppninni sem hefur ekki gerst áður.

Alfreð: Ég gerði ekkert rangt

Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason náði heldur betur að kveikja í stuðningsmönnum tyrkneska landsliðsins áður en hann hélt til Tyrklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×