Sport

Tennisdrottning hrynur af stalli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Maria Sharapova tilkynnti heiminum í fyrrakvöld að hún hefði fallið á lyfjaprófi. Hún er ein allra þekktasta íþróttakona heims.
Maria Sharapova tilkynnti heiminum í fyrrakvöld að hún hefði fallið á lyfjaprófi. Hún er ein allra þekktasta íþróttakona heims. fréttablaðið/getty
Maria Sharapova verður ekki skráð í sögubækurnar sem besta tenniskona heims. Hún hefur unnið fimm risamót á fimmtán ára atvinnumannaferli og tvívegis setið í efsta sæti heimslistans. En enginn vafi er á að hún er ein allra þekktasta íþróttakona heims en því til stuðnings má nefna að hún hefur undanfarin ellefu ár verið tekjuhæsta íþróttakona heims samkvæmt úttekt Forbes-tímaritsins.

Það kom því íþróttaheiminum í opna skjöldu þegar hún tilkynnti í fyrrakvöld að hún hefði fallið á lyfjaprófi. Það gerði hún á blaðamannafundi sem hún hélt sjálf á hóteli í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Tók inn lyfið í áratug

„Ég féll á lyfjaprófi og tek fulla ábyrgð á því,“ sagði hún hreinskilin í yfirlýsingu sinni. Umrætt efni sem varð henni að falli heitir meldóníum og staðfesti Sharapova að hún hafi tekið það inn reglulega undanfarinn áratug. „Ég byrjaði að taka lyfið árið 2006 en þá varð ég oft veik. Ég fékk flensu á tveggja ára fresti og var í hættu á að fá sykursýki vegna fjölskyldusögu minnar. Mér batnaði við að taka þetta lyf og því hélt ég því áfram,“ sagði hún á blaðamannafundinum.

Játning Sharapovu vakti gríðarlega athygli. Ljóst er að hún fer í tímabundið bann þann 12. mars en refsiramminn fyrir brot hennar er frá sex mánuðum til fjögurra ára. Þeir sem þekkja til telja líklegast að hún fái tveggja ára bann en Sharapova gæti sloppið með styttri refsingu ef henni tekst að sýna fram á að hún hafi tekið inn lyfið af annarri ástæðu en að bæta frammistöðu sína.

Sharapova ásamt Serenu Williams.vísir/getty
Styrktaraðilar flúðu

„Það er erfitt að finna svartan blett á hennar ferli,“ sagði Nick Bolettieri, fyrrum þjálfari hennar. „En hún vill sannarlega ekki að ferli hennar ljúki á þennan máta.“

Sharapova hefur þénað rúma 3,3 milljarða króna á tennisferlinum einum saman en mun hærri upphæð með styrktar- og auglýsingasamningum. Hún hefur átt í samstarfi við Nike frá ellefu ára aldri en fyrirtækið tilkynnti strax í gær að því samstarfi væri lokið, í bili að minnsta kosti. Tag Heuer gerði slíkt hið sama en hún er einnig með samninga við Evian, Avon og Porsche. Afleiðingarnar eru því ekki aðeins miklar fyrir íþróttina, heldur hana sjálfa líka.

Smellti ekki á hlekk

Eins og hún sagði sjálf á blaðamannafundinum ber hún fyrst og síðast sjálf ábyrgð á lyfjainntöku sinni. Axlar hún því fulla ábyrgð af því að hafa fallið á lyfjaprófinu.

„En það er mikilvægt að þið vitið að í tíu ár var lyfið ekki á bannlista. Ég tók því lyfið löglega í áratug,“ segir hún. Aðspurð um hvort hún hafi ekki fengið upplýsingar um þær breytingar sem voru gerðar á lögum um lyfjanotkun um áramótin sagði hún vissulega svo vera, en að hún hafi ekki smellt á hlekk sem fylgdi tölvupóstinum sem hún fékk þess efnis.

Ekki eru allir á eitt sáttir um skýringar Sharapovu. Ein þeirra er Jennifer Capriati, sigurvegari á þremur stórmótum og gullverðlaunahafi á Ólympíuleikum.

„Ef þetta lyf hefði hjálpað mér að koma aftur til baka, hefðu allir verið sáttir við það? Það er mín skoðun að ef þetta er allt saman rétt þá ætti að taka af henni alla titla. Þetta snýst ekki bara um hana,“ sagði Capriati.


Tengdar fréttir

Sharapova: Ég axla fulla ábyrgð

Sá fáheyrði atburður gerðist í kvöld að íþróttamaður axlaði ábyrgð eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×