Innlent

Telur sjálfbæra landnýtingu mikilvæga til framtíðar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar Bragi.
Gunnar Bragi. Vísir / Pjetur
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, tók í dag þátt í ráðherrafundi um sjálfbæra landnýtingu sem Ísland stóð fyrir ásamt Qatar, Morocco og Þýskalandi.

Fundurinn fór fram í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna þar sem sérstök áhersla er á meðal annars á loftslagsbreytingar.

Fram kemur í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu að Gunnar hafi í ræðu sinni farið yfir mikilvægi landgræðslu fyrir heiminn og þekkingu Íslands í þeim efnum.

Síðastliðin 100 ár hafi Ísland svo náð miklum árangri í landgræðslu og deili þeirri þekkingu sem hefur áunnist með öðrum þjóðum meðal annars gegnum landgræðsluskóla háskóla SÞ á Íslandi.

Ráðherrann sagði að landeyðing og eyðumerkurmyndun væri mest þar sem mannfólkinu fjölgar hraðast sem aftur leiddi til rýrari matvælaframleiðslu á þeim svæðum. Á hverjum áratugi breytast 1,2 milljón ferkílómetra af landi í eyðimörk.

Það er fjórum sinnum stærð Þýskalands. Þetta væri því mikilvægt málefni sem snerti á fæðuöryggi og loftlagsbreytingum.

Monique Barbut framkvæmdastýra Eyðumerkursamnings Sameinuðu Þjóðanna stýrði fundinum. Fram kom í máli hennar að árið 2013 hafi 13 milljón manna farið á vergang vegna náttúruhamfara og þar sé þurrkur stærsti áhrifavaldurinn. Landgræðsla skipti því miklu.

Ísland ásamt Namibíu stofnaði fyrir ári síðan vinahóp landa sem vilja vinna gegn landeyðingu og eyðumerkurmyndun og hefur látið til sín taka í undirbúningi nýrra þróunarmarkmiða, m.a. sendu utanríkisráðherrar Íslands og Namibíu bréf til aðalframkvæmdastjóra SÞ til að vekja athygli hans á þessu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×