Viðskipti innlent

Telur Eyjafjörð í orkusvelti

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Eyjafjörður þarf meiri orku til að íbúarnir dafni, segir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Fréttablaðið/Pjetur
Eyjafjörður þarf meiri orku til að íbúarnir dafni, segir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Fréttablaðið/Pjetur
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkarhepps í Eyjafirði.
„Það virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða um að Eyjafjörður og jafnvel Norðurland allt skuli vera orkusvelt til framtíðar,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, í nýjum pistli á heimasíðu hreppsins.

Þröstur segir flutningskerfi raforku inn á Eyjafjarðarsvæðið vera sprungið og ekki taki minna en fimm ár að bæta þar úr. Virkjanleg fallvötn í Skagafirði og Þingeyjarsýslu séu í verndarflokki og vaxandi andstöðu gæti við gufuaflsvirkjanir auk efasemda um endingu jarðhitans. Allir stjórnmálaflokkar séu andvígir lagningu háspennulínu yfir Sprengisand.

„Þeir stjórnmálamenn og einnig umhverfisverndarsinnar sem ætla að koma í veg fyrir lagningu línu yfir Sprengisand eru í reynd að lýsa því yfir að ekki skuli lengur ríkja jafnrétti til búsetu á Íslandi,“ skrifar Þröstur. „Aðrar leiðir til að leysa orkuþörf hér á svæðinu eru einfaldlega verri í öllu tilliti, hvort sem horft er til kostnaðar eða umhverfis. Byggð sem ekki á kost á rafmagni af pólitískum ástæðum á sér enga von um að geta vaxið og dafnað eðlilega.“

Þá segir Þröstur það hrikalega hömlun á framfarir og íbúaþróun að ekki sé hægt að útvega raforku til þeirra sem áhuga hefðu á að stofna til nýrrar atvinnustarfsemi. Gagnaver og önnur meðalorkufrek starfsemi séu alveg út úr myndinni næstu árin, jafnvel áratugi.

„Það sem enn verra er, að jafnvel þó að takist að tengja vestur til Blöndu og austur til Kröflu, mun áfram vanta afl og öryggi í kerfið til frambúðar meðan ekki tekst að tengja við virkjanir á suðurhálendinu,“ segir sveitarstjórinn meðal annars í pistli sínum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×