Innlent

Telur ekki jákvætt að takmarka valfrelsi fólks á meðan krónan er enn gjaldmiðillinn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Árni Páll Árnason
Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Árni Páll Árnason vísir
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir frumvarp þeirra Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur og Helga Hjörvar, þingmanna flokksins, um bann við verðtryggingu á nýjum neytendalánum ekki í samræmi við stefnu flokksins, en hann kveðst vera sammála henni.

„Samfylkingin hefur skýra stefnu varðandi verðtrygginguna og hún felst í því að auka valmöguleika fólk og auka vægi óverðtryggðrar fjármögnunar og losa okkur síðan undan verðtryggingu með upptöku á alvöru gjaldgengum gjaldmiðli sem hægt er að eiga viðskipti með innan sem utan landsteinanna,“ segir Árni Páll í samtali við Vísi.

Hann segist ekki sjá rökin fyrir því að þvinga fólk til þess að taka lán sem að minnsta kosti góðar líkur séu á að séu áhættumeiri og sveiflukenndari í afborgunum heldur en verðtryggð lán.

„Hlutdeild óverðtryggðra lána jókst vissulega eftir hrun en hlutdeild verðtryggðra lána hefur svo aftur aukist á seinustu árum. Það er því greinilegt að fólk er að taka upplýsta ákvörðun á grundvelli vals á ólíkum kostum og ég sé ekki að það þjóni neinum jákvæðum tilgangi að takmarka valfrelsi fólks að þessu leyti svo lengi sem við búum við að vera með íslenska krónu,“ segir Árni Páll.   

Árni Páll segir verðtrygginguna vissulega dýra leið til þess að verja sig fyrir gengissveiflum en höfuðvandamálið í því efni sé krónan. Hann segist telja að það sé enginn ágreiningur um það innan Samfylkingarinnar að besta leiðin til að losna við verðtrygginguna sé að taka upp nýjan gjaldmiðil en svo séu ólík sjónarmið innan flokksins varðandi það hvort banna eigi verðtryggingu í millitíðinni eða ekki.


Tengdar fréttir

Vilja banna verðtryggingu á nýjum neytendalánum

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar, þingmenn Samfylkingarinnar, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um bann við verðtryggingu á nýjum neytendalánum, þar með talið húsnæðislánum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×