Innlent

Telur ekki grundvöll fyrir rekstri Hamra

Sveinn Arnarsson skrifar
"Allt frá upphafi starfsemi Hamra á síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur hjúkrunarheimilisins verið mjög erfiður,“ segir í minnisblaði um rekstur Hamra.
"Allt frá upphafi starfsemi Hamra á síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur hjúkrunarheimilisins verið mjög erfiður,“ segir í minnisblaði um rekstur Hamra. vísir/ernir
Allt að sjö milljarða vantar til öldrunarheimila landsins frá hinu opinbera eigi heimilin að uppfylla það þjónustustig sem landlæknisembættið telur eiga að vera, að mati Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Mörg öldrunar- og hjúkrunarheimili eru mjög illa sett fjárhagslega og mörg sveitarfélög hlaupa undir bagga með það sem upp á vantar, sem hið opinbera ætti í raun að greiða.

Á bæjarráðsfundi í Mosfellsbæ síðastliðinn fimmtudag var rekstrarvandi hjúkrunarheimilisins Hamra í Mosfellsbæ ræddur. „Allt frá upphafi starfsemi Hamra á síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur hjúkrunarheimilisins verið mjög erfiður. Daggjöld frá ríki hafa ekki hrokkið fyrir útgjöldum,“ segir í minnisblaði um rekstrarvanda Hamra sem var lagt fyrir bæjarráð.

Í minnisblaðinu er vitnað í yfirlýsingu framkvæmdastjóra Hamra, Sigurðar Rúnars Sigurjónssonar, sem segir að velferðarráðuneytið hafi hafnað erindi þeirra um leiðréttingu á ýmsum þáttum sem snéru að rekstrinum og að áfram verði ekki við unað. „Rekstrargrundvöllur fyrir heimilið er því ekki til staðar,“ segir Sigurður Rúnar.

Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra segir um einn og hálfan milljarð hafa verið settan í málaflokkinn aukalega á ársgrundvelli vegna áranna 2016-2018. 

„Það er stefna stjórnarinnar, eins og kemur fram í stjórnarsáttmálanum, að gera betur í málaflokknum. Nýr rammasamningur var settur á laggirnar og öll hjúkrunarheimilin sögðu sig inn á þann samning,“ segir Óttarr. „Einnig hafa lífeyrisskuldbindingar verið teknar af þeim sem er heilmikill pakki. Því hefur margt verið gert en við ætlum að halda áfram og gera betur í málaflokknum.“

Pétur Guðmundsson, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir kostnaðargreiningu á þjónustuþörf þeirri sem landlæknisembættið taldi æskilega hafa hljóðað upp á um 40.000 krónur fyrir daginn. Hins vegar greiði hið opinbera ekki nema um 27.000 krónur fyrir daginn. Því sé eðlilegt að mörg hjúkrunarheimili séu í vanda og standi illa fjárhagslega.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×