Viðskipti innlent

Telur ásakanir WOW ekki standast skoðun

Jóhannes Stefánsson skrifar
Skarphéðinn Berg er undrandi yfir framgöngu Skúla Mogensen, forstjóra Wow Air.
Skarphéðinn Berg er undrandi yfir framgöngu Skúla Mogensen, forstjóra Wow Air. Vísir/Kristján Sigurjónsson
Skarphéðinn Berg Steinarsson fyrrverandi forstjóri Iceland Express segir Isavia ekki þekkt fyrir að standa vörð um hagsmuni Icelandair. Hann furðar sig á viðbrögðum Skúla Mogensen við því að Wow Air hafi ekki hlotið brottfarartíma á Keflavíkurflugvelli á þeim tíma sem þeir óskuðu eftir.

Skúli Mogensen, forstjóri Wow Air, hefur síðustu daga meðal annars sakað Isavia um að „vernda hagsmuni og einokun Icelandair." Hann segir ákvörðun Isavia um að áfrýja niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem komst að því að Isavia skyldi úthluta Wow Air brottfarartíma á Keflavíkurflugvelli „á milli kl 16:00 og 17:30 fyrir flug til áfangastaða í Bandaríkjum Norður-Ameríku," varna því að félagið geti hafið flug til Bandaríkjanna á þessu ári. Áfrýjunin frestar réttaráhrifum ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins, og því þarf Wow Air enn sem komið er að notast við brottfarartíma klukkan 17:50, samkvæmt úthlutun.

Ekkert óvenjulegt við úthlutunina

Skarphéðinn furðar sig á þessum viðbrögðum Wow Air, enda hafi Iceland Express ekki átt í neinum vandkvæðum með að sinna flugi til Boston og New York árið 2011 á sama tíma og Wow Air fékk úthlutað, eða kl 17:50. Þeir hafi þó þurft að færa morgunflug sín til Evrópu frá klukkan sjö að morgni til klukkan hálf níu, til að halda samhengi í flugáætluninni. Skarphéðinn undrast yfir því að Wow Air geti ekki gert slíkt hið sama, og bendir á að þessar breytingar hafi verið gerðar í góðu samstarfi við Isavia og Icelandair á sínum tíma. Á þeim tíma flýtti Icelandair sínum ferðum til að koma til móts við Iceland Express.

Norsk flugmálayfirvöld á öðru máli en Wow Air

SAS og norsk flugmálayfirvöld deildu fyrir um áratug síðan um sambærilegt mál á norskum flugvöllum. Fred Andreas Wister, sem annast samræmingu afgreiðslutíma á flugvöllum þar í landi, sagði í samtali við fréttavefinn Túristi.is að norsk yfirvöld gætu ekki beitt sér í slíkum málum, enda væri tímaúthlutun á flugvöllum hluti af sameiginlegum evrópskum reglum, sem hafi forgangsáhrif yfir innlendum lögum samkvæmt EES-samningnum. I ljósi þess hafi Norwegian á sínum tíma þurft að sætta sig við þá tíma sem þeir fengu úthlutað. Félagið hefur þrátt fyrir það dafnað og er meðal stærstu lággjaldaflugfélaga í Evrópu.

Fréttavefurinn Túristi.is greinir frá.


Tengdar fréttir

WOW Air þarf að hætta við Ameríkuflug

WOW Air er að öllu óbreyttu hætt við áætlunarflug til Norður-Ameríku. Forstjóri félagsins er harðorður í garð rekstaraðila Keflavíkurflugvallar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×