Viðskipti innlent

Telur ákæruna byggða á misskilningi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björk Þórarinsdóttir mætir til leiks í héraðsdómi í morgun.
Björk Þórarinsdóttir mætir til leiks í héraðsdómi í morgun.
Björk Þórarinsdóttir, fyrrverandi starfsmaður fyrirtækjasviðs Kaupþings og nefndarmaður í lánanefnd Kaupþings-samstæðunnar, var sú seinasta af ákærðu til að gefa skýrslu í markaðsmisnotkunarmálinu í dag. Hún er ákærð fyrir aðkomu sína að einni lánveitingu til eignarhaldsfélagsins Holt í september 2008. Lánið var veitt vegna hlutabréfakaupa félagsins í bankanum.

 

Er henni gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína sem lánanefndarmaður, farið út fyrir heimildir sínar og stefnt fé bankans í verulega hættu vegna lánsins til Holt, að því er segir í ákæru.

 

Ákæran var reiðarslag

Björk byrjaði á því að ávarpa dóminn og sagði meðal annars:

 

„Ákæran var reiðarslag og vekur undrun því ég tel hana byggða á misskilningi. Ég er ákærð fyrir að hafa farið út fyrir heimildir mínar en þegar betur er að gáð hafði lánanefnd samstæðunnar ekki heimild til að samþykkja lánið til Holt, enda vísaði hún láninu til lánanefndar stjórnar.”

 

Þá sagði hún starfsmenn fyrirtækjasviðs sem komu að útlánum hafi ekki haft neinar heimildir til að veita lán.

 

„Var ég í aðstöðu til að skuldbinda Kaupþing með lánveitingunni til Holt í september 2008? Lánanefnd stjórnar gat bara veitt umrætt lán, ekki lánanefnd samstæðu sem ég sat í. Ég gat því hvorki skuldbundið Kaupþing né misnotað aðstöðu mína. [...] Ég hafna ákærunni og tel mig saklausa af refsiverðri háttsemi.”

 

Lánið til Holt afgreitt í samræmi við reglur

Fram kom í máli Bjarkar þegar Björn Þorvaldsson, saksóknari, spurði hana út í ákæruna að hún hafi aldrei dregið reglubók bankans vegna útlána í efa. Hún sagði að lánið til Holt hefði verið afgreitt í samræmi við reglur bankans og samþykkt af þar tilbærri lánanefnd.

 

Björn bar þá undir hana tölvupóst sem Rúnar Magni Jónsson, viðskiptastjóri á lánasviðið Kaupþings, sendi Björk og yfirmanni hennar, Bjarka Diego, sem einnig er ákærður í málinu, þann 18. september 2008, sama dag og lánanefnd samstæðunnar vísaði láninu til lánanefndar stjórnar.

 

„Nú eru viðskipti Holt Investment á gjalddaga á morgun. Gefið þið samþykki fyrir því að þetta sé greitt út þrátt fyrir að það eigi eftir að bóka þetta á BCC [Board Credit Committe]?”

 

Ráðfærði sig við Bjarka

Björk svaraði póstinum daginn eftir og sagðist samþykkja þetta fyrir sitt leyti. Spurð út í þetta samþykki sitt sagði Björk:

 

„Ég tel mig hafa haft þær upplýsingar að lánanefnd stjórnar væri búin að samþykkja þetta milli funda og að það yrði bókað á næsta fundi nefndarinnar.”

 

Aðspurð hvaðan hún hefði þær upplýsingar sagði hún:

 

„Ég ráðfærði mig við Bjarka, minn yfirmann, og tel að hann sé með þær upplýsingar að lánanefnd stjórnar sé þessu samþykk.”

Skýrslutöku yfir Björk lauk laust eftir klukkan 15 í dag. Þar með hafa níumenningarnir sem ákærðir eru í málinu allir gefið skýrslu og munu vitnaleiðslur hefjast á morgun.


Tengdar fréttir

Segir mestu skipta að enginn peningur fór úr bankanum

Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, segist aldrei hafa tekið ákvörðun um að veita eignarhaldsfélögunum Holt og Desulo lán til að kaupa hlutabréf í bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×