Innlent

Telur að úthlutun listamannalauna sé í fullu samræmi við stjórnsýslulög

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Haraldur vildi meðal annars fá að vita hvort fyrirkomulag úthlutunarinnar stæðist stjórnsýslulög.
Haraldur vildi meðal annars fá að vita hvort fyrirkomulag úthlutunarinnar stæðist stjórnsýslulög.
Fyrirkomulag úthlutunar listamannalauna er þess eðlis að það stenst stjórnsýslulög. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, við fyrirspurn Haralds Einarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Í frétt Vísis frá í janúar kom meðal annars fram að stjórn Rithöfundasambandsins hafi valið nefndina sem úthlutar laununum. Þegar laununum var úthlutað kom á daginn að flestir stjórnarmeðlimir fengu launum úthlutað.

Svar ráðherrans bar með sér að í raun væri það ekki stjórn fagfélagsins sem veldi nefndina heldur skuli það gert á aðalfundi eða formlega boðuðum fundi félagsins. Lög séu í gildi um launin og á grundvelli laganna hefur verið sett reglugerð um nánari útfærslu á úthlutun launanna. „Með því að hafa þennan hátt á telur ráðherra að úthlutunin standist stjórnsýslulög,“ segir í svarinu.

Þá kemur einnig fram að ekki hafi komið til álita að binda úthlutun launanna við tekjur listamannanna. Listamannalaunin séu í mörgum tilfellum eini möguleiki starfandi listamanna til að helga sig listsköpun sinni óskipt. „Þó svo að allir starfandi listamenn geti sótt um listamannalaun hefur reynslan sýnt að tekjuhæstu listamenn þjóðarinnar sækja alla jafna ekki um listamannalaun,“ segir meðal annars í svarinu. Einnig kemur fram að hámarkstími sé á því í hve langan tíma listamaður getur þegið launin í einu.

Í svarinu kemur einnig fram að ráðherra telur að nú þegar séu einstök verkefni styrkt en ekki einstakir listamenn og að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um að styrkja frekar unga og nýja listamenn. Það komi hins vegar til álita. Svarið í heild sinni má lesa hér.


Tengdar fréttir

Völdu nefndina sem úthlutaði þeim árslaunum

Stjórn Rithöfundasambandsins hlaut öll hámarksstyrk úr launasjóði listamanna. Stjórnin valdi sjálf úthlutunarnefndina. Formaðurinn segir stjórnina ekki hafa afskipti af störfum nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×