Viðskipti innlent

Telur að Costco muni frekar opna seinni part árs 2016

Sæunn Gísladóttir skrifar
Costco hefur áform um að ráðast í framkvæmdir og stækka húsnæðið um 2.000 fermetra. Hér sjást Gunnar Einarsson og Steve Pappas skoða sig um í Kauptúni.
Costco hefur áform um að ráðast í framkvæmdir og stækka húsnæðið um 2.000 fermetra. Hér sjást Gunnar Einarsson og Steve Pappas skoða sig um í Kauptúni. Vísir/Stefán
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segist frekar trúa því að Costco opni seinni parti árs 2016, en fyrri part árs eins og áður hefur komið fram.

Þegar fregnir bárust í fyrra um að bandaríski smásölurisinn Costco væri væntanleg í Garðabæ var áætlað að verslunin myndi opna fyrir jól 2015. Costco og Garðabær undirrituðu samning í sumar sem sem tryggir Costco landsvæði og byggingu verslunar og bensínstöðvar í Kauptúni í Garðabæ. Þá var stefnt að opnun sumarið 2016, en vöruhús Costco í Garðabæ mun einnig bjóða upp á þjónustu á borð við apótek, sölu sjóntækja og sjónmælingu, dekkjasölu og dekkjaverkstæði, bakarí og sælkeraverslun.

Spurður um stöðu mála telur Gunnar að opnunartíminn gæti dregist eitthvað. „Forsvarsmenn Costco sendu inn bréf til bæjarráðs þar sem var óskað eftir ýmsum breytingum á því húnsæði sem þeir voru að festa kaup á og önnur skipulagsmál. Því bréfi var vísað til skipulagsnefndar sem er að fjalla um málið," segir Gunnar. Hann telur að fjallað verði um málið á næsta fundi skipulagsnefndar sem er einhvern tímann á næstu tveimur vikum. „Þetta þarf að fara í gegnum ákveðið skipulagsferli og þegar allir þeir hnútar eru hnýttir geta þeir hafist handa og það tekur ákveðinn tíma. Það er ómögulegt að segja hvenær þeir geta opnað miðað við þær breytingar sem þeir vilja gera," segir Gunnar. Hann telur hins vegar að þar sem hann átti von á bréfinu fyrr, þá gætu framkvæmdir dregist eins og því nemur. „Ef ég ætti að meta það sem leikmaður myndi ég frekar trúa því að þetta væri á seinni part árs en fyrri part árs árið 2016," segir Gunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×