Innlent

Telur að baráttan um Bessastaði verði á milli sín og Guðna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Andri Snær Magnason.
Andri Snær Magnason. Vísir/Valli
„Það er gott að vera farinn að rísa aftur,“ segir Andri Snær Magnson forsetaframbjóðandi um nýja skoðanakönnun MMR. Hann mælist þar með 11 prósent fylgi en var með 8,8 prósent fylgi í seinustu könnun MMR sem birt var 9. maí. Guðni Th. Jóhannesson mælist með  yfirburðafylgi eða 65,5 prósent og Davíð Oddsson kemur þar á eftir með 18,1 prósent fylgi.

Þegar Andri er beðinn um að svara því heiðarlega hvort hann telji sig eiga einhvern möguleika á að vinna kosningarnar miðað við þessa könnun sem birtist nú sléttum mánuði fyrir kjördag svarar hann því játandi.

„Það er algjörlega já. Sjónvarpskappræðurnar eru til að mynda eftir og það má í rauninni segja að seinni hálfleikur kosningabaráttunnar sé að hefjast nú. Við eigum algjörlega eftir að sjá hvernig það spinnst og ég held að Davíð gæti alveg eins dregið sig í hlé núna. Ég útiloka ekkert þar sem atburðarás síðustu vikna hefur verið svo óútskýranleg að ég get ekki verið annað en bjartsýnn á að hvað sem er geti gerst,“ segir Andri.

Þú segir að Davíð gæti dregið sig í hlé en nú mælist hann með meira fylgi en þú. Gætir þú þá ekki allt eins dregið þig í hlé?

„Nei, ég held að þetta sé meira milli mín og Guðna,“ segir Andri.

Aðspurður af hverju hann telji það segir hann:

„Áherslumunurinn á hugmyndum og framtíðarsýn hefur kannski ekki komið nógu skýrt í ljós en kosningarnar hafa í raun mikið markast af Ólafi Ragnari og Davíð og frambjóðendur ekki fengið að takast á um hver þeirra sýn sé. Þannig að ég held að það mælist mjög skýr vilji til þess að Davíð verði ekki forseti og það sé kannski stærsti mælingarpunkturinn.“


Tengdar fréttir

Guðni Th. enn með langmest fylgi

Guðni Th. Jóhannesson heldur forystunni með 65,6 prósent fylgi. Næstur á eftir honum er Davíð Oddsson með 18,1 prósent fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×