Fótbolti

Telma samdi við meistarana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Telma Hjaltalín var meidd í sumar.
Telma Hjaltalín var meidd í sumar. vísir/stefán
Telma Hjaltalín Þrastardóttir er gengin í raðir Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna frá Breiðabliki en þetta kemur fram á heimasíðu Garðabæjarliðsins.

Telma gerði þriggja ára samning við Stjörnuna sem hafði betur gegn Breiðabliki í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.

Þessi 21 árs gamli framherji er uppalinn hjá Aftureldingu en hún gekk í raðir Breiðabliks fyrir þremur árum. Hún skoraði þrettán mörk í 17 leikjum fyrir Blika í fyrra en var ekkert með í sumar vegna meiðsla.

Telma á einn U23 ára landsleik að baki fyrir Ísland en auk þess á hún að baki 48 leiki fyrir U17 og U19 ára landslið Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×