Innlent

Telja vegið að upplýsingafrelsinu á Íslandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Samtökin gera meðal annars að umtalsefni í yfirlýsingunni óöruggt starfsumhverfi í fjölmiðlum á Íslandi.
Samtökin gera meðal annars að umtalsefni í yfirlýsingunni óöruggt starfsumhverfi í fjölmiðlum á Íslandi. Vísir/Anton Brink
Samtök blaðamanna án landamæra hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu vegna þess sem þeir segja aðför að upplýsingafrelsi á Íslandi. Vísa þeir í meiðyrðamál Þóreyjar Vilhjálmsdóttur, aðstoðarmanns innanríkisráðherra, og niðurskurð á fjárframlögum til Ríkisútvarpsins.

Samtökin harma það að Þórey Vilhjálmsdóttir skuli hafa krafist fangelsisdóms yfir blaðamönnum DV, þeim Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannsson, en eins og greint var frá fyrr í kvöld hafa blaðamennirnir nýlegt lagt fram sáttatilboð í málinu.

Þá gera samtökin að umtalsefni óöruggt starfsumhverfi í fjölmiðlum á Íslandi. Vitna þau í að næstum allir ritstjórar á fjölmiðlum hér á landi hafi verið reknir eða sagt upp störfum á árinu, fyrir utan Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins. Er til að mynda vísað í það þegar Óðni Jónssyni, fyrrum fréttastjóra RÚV var sagt upp störfum.

Þá er einnig fjallað um það þegar Mikael Torfasyni var sagt upp störfum sem aðalritstjóra fréttastofu 365 miðla og Ólafur Stephensen lét af störfum í kjölfarið sem ritstjóri Fréttablaðsins.*

Þá gagnrýna samtökin niðurskurð til RÚV og vitna í ummæli Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, um fréttaflutning stofnunarinnar:

„Er eðlilegt að ríkisstofnun eins og RÚV, sem tekur til sín 4 milljarða á ári af skattfé auk auglýsingatekna í samkeppni við einkastöðvar fari fram með þessum hætti? Ég er náttúrlega í þessum hagræðingarhópi og þar liggur allt undir. Mér finnst óeðlilega mikið fjármagn fara í rekstur RÚV. Sérstaklega þegar þeir eru ekki að standa sig betur í fréttaflutningi. Þeir eru hlynntir ákveðinni stefnu og hallast til vinstri. Þetta sjá allir sem vilja sjá. Ég fullyrði það og get staðið við hvar og hvenær sem er að stofnunin er mjög Evrópusambandssinnuð.“

Segja samtök blaðamanna án landamæra að ummæli á borð við þessi frá stjórnmálamönnum setji þrýsting á blaðamenn, sem sé ekki æskilegt.  

*365 miðlar er útgefandi Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×