Innlent

Telja sig vita um tugi kaupenda í umfangsmiklu vændismáli

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vita um tugi kaupenda í  umfangsmiklu vændismáli sem hún hefur til rannsóknar. Allir verða þeir boðaðir til skýrslutöku á næstunni. Þá er talið að starfsemin hafi verið starfrækt í nokkra mánuði.

Greint var frá því á þriðjudag að par, karl og kona, á fertugs og fimmtugsaldri hefði verið handtekið fyrr um daginn vegna gruns um umfangsmikla vændisstarfsemi. Karlinn er Íslendingur en konan af erlendu bergi brotin.

Gerð var húsleit í þremur íbúðum á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins og hald lagt á milljónir í reiðfé. Í tveimur íbúðanna voru þrjár konur á þrítugsaldri sem grunur leikur á að Parið hafi gert út í vændi.

Parið var úrskurðað í gæsluvarðhald til 6. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi, segir að grunur leiki á að umrædd starfsemi hafi átt sér stað í einhvern tíma.

„Við erum að tala um nokkra mánuði en það voru ákveðnar ástæður fyrir því að við ákváðum að grípa inn í á þriðjudaginn,“ segir Snorri en rannsókn lögreglu hafði staðið yfir í um þrjár vikur fyrir þann tíma.

Í vikunni hefur lögreglan yfirheyrt sakborningana og vitni í málinu sem eru konurnar þrjár. Til rannsóknar er hvort þær séu þolendur mansals en þeim hefur öllum verið komið í viðeigandi úrræði. Þá er lögreglan einnig að rannsaka kaupendur í málinu.

„Við teljum að fjöldi kaupenda hlaupi á tugum en við getum ekki farið nánar út í þær tölur og það verður bara að koma í ljós,“ segir Snorri og bætir við að þeir megi eiga von á því að vera boðaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu á næstunni en samkvæmt lögum er refsivert greiða eða heita greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi og geta kaupendur átt von á því að sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. „Það verður borið undir vitni eða sakborninga, þau gögn sem lögreglan hefur,“ segir Snorri.

Snorri segir að málið sé umfangsmikið og  óvenjulegt en þetta er fyrsta mál sinnar tegundar hérlendis frá því árið 2009 þegar Catalina Nocogo var sakfelld fyrir milligöngu vændis. Þá segir hann að mikil aukning hafi orðið í framboði vændis í Reykjavík.

„Við höfum fengið upplýsingar um fleiri tilfelli það er staðreynd og við munum fylgja eftir því sem við teljum líklegt til árangurs í rannsóknum en ég vil ekki tjá mig um það hvort það séu fleiri svona mál til rannsóknar í dag,“ segir Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×