Viðskipti innlent

Telja óeðlilegt að stjórnendur hafi verið í hópi einu fjárfestanna í Borgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steinþór Pálsson er forstjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson er forstjóri Landsbankans.
Bankasýsla ríkisins telur að Landsbankinn hafi ekki rökstutt ákvörðun um að selja Borgun í lokuðu söluferli með fullnægjandi hætti. Þetta kemur fram í bréfi sem Bankasýslan hefur sent bankaráði Landsbankans.

„Þannig bendir margt til þess að bankinn hafi dregið rangar ályktanir af samskiptum sínum við Samkeppniseftirlitið varðandi mögulega fresti og svigrúm til að selja eignarhlut sinn í félaginu. Hins vegar telur Bankasýla ríkisins að frumkvæði bankans og góður samstarfsvilji hafi verið honum til málsbóta við ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins.“

Þá telur Bankasýslan að verklagið við samningagerð Landsbankans hafi að sumu leyti verið ábótavant. Bankasýslan tekur fram að það sé jákvætt að Landsbankinn hafi samið um hlutdeild í þátttöku Valitors vegna mögulegrar sölu á Visa Europe, en engin haldbær rök hafi komið fram fyrir því að hann hafi ekki gert sömu fyrirvara vegna sölunnar á Borgun. Sala á þessum tveimur félögum hafi farið fram samhliða. Telur Bankasýsla ríkisins jafnframt að Landsbankinn sem stærsta fjármálafyrirtæki landsins geti ekki borið fyrir sig grandleysi annarra kaupenda á eignarhlutum í Borgun.

Bankasýslan segir að spurningar hafi vaknað um verðmat bankans á eignarhlutnum í Borgun. Upplýsingar sem birst hafi opinberlega hafi gefið til kynna að verðmæti alls hlutafjár Borgunar hafi aukist mun meira en virði skráðrar hlutabréfa á Íslandi frá því að Landsbankinn samþykkti tilboð kaupenda. Það hafi valdið þvi að trausti til bankans og stjórnenda hans hafi beðið hnekki. „Hefði Landsbankinn selt hluti sína í opnu og gagnsæju ferli þar sem markaðurinn hefði verðlagt bréfin má ætla að það hefði ekki gerst,“ segir í bréfinu.

Bankasýslan telur það jafnframt gagnrýnisvert að bankinn skuli hafa komið sér í þá stöðu að eini viðsemjandinn hafi verið hópur fjárfesta sem innihélt meðal annars stjórnendur Borgunar. Jafnframt verði að gera þá kröfu til bankans að viðhafa sérstaka aðgæslu við mat á rekstraráætlunum, sem gerðar eru af aðilum innan kaupendahópsins (þ.e. stjórnendum). „Að síðustu hafa svör bankans við þeirri gagnrýni sem salan hefur hlotið ekki verið sannfærandi. Að þessu sögðu telur Bankasýsla ríkisins að hafi Landsbankinn athugasemdir við upplýsingagjöf af hálfu annarra aðila i tengslum við sölumeðferð á eignarhluti í Borgun að bankinn leiti réttar síns ef hann telur tilefni til,“ segir í bréfinu til bankaráðsins.


Tengdar fréttir

Útilokar ekki málsókn vegna Borgunarmálsins

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, vill ekki útiloka að bankinn leiti réttar síns í Borgunarmálinu, þrátt fyrir svör stjórnenda Borgunar við fyrirspurn bankans. Landsbankinn hafi verið grandalaus varðandi mögulegar greiðslur til Borgunar vegna yfirtöku Vísa í Bandaríkjunum á Vísa í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×