Innlent

Telja innistæðu fyrir helmingslækkun á fasteignaverði

Hafsteinn Hauksson skrifar
Sérfræðingar telja að innistæða sé fyrir allt að 50 prósenta lækkun á fasteignaverði ofan á þá leiðréttingu sem þegar hefur komið fram frá hruni. Eina leiðin til að breyta horfunum sé að lækka vexti og auka kaupmátt.

Meðalfermetraverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um þriðjung frá árinu 2007 að raunvirði, bæði vegna beinnar verðlækkunar og mikillar verðbólgu.

Þrátt fyrir það telja Ársæll Valfells lektor og Brynjar Pétursson ráðgjafi að innistæða sé fyrir enn meiri lækkun, en þeir hafa unnið greiningu á fasteignamarkaðnum og kynntu hana á fjölmennum fundi hjá VÍB í dag.

Brynjar segir að ávöxtunarkrafa fjárfesta til fasteigna sé of lág, sem merki að þeir séu að niðurgreiða fjárfestingar sínar og það gangi ekki til lengdar. Það sé því innistæða fyrir enn frekari lækkun fasteignaverðs á markaðnum.

„Ég hugsa að þegar kemur að íbúðarhúsnæði nemi hún 30 til 50 prósentum eftir svæðum, en ef vextir lækka þá geti aðrir þættir komið til greina," segir Brynjar.

„Raunverðið hefur ekki lækkað í átt að kaupmætti, svo það er ennþá bil á milli þess sem við höfum efni á að borga fyrir húsnæði og þess sem það kostar. Það munar um 11 til 12 prósentum," segir Ársæll. „Það segir okkur allavega að ef verðið lækkar ekki, þá verður áfram þungt fyrir okkur að eignast húsnæði," spurður hvort bilið á milli kaupmáttar og verðs kalli á frekari lækkun.

Ársæll segir að tvennt þurfi að gerast til að þessar horfur breytist.

„Til þess að þetta verð geti staðið undir sér, þá þarf kaupmáttur að fara að vaxa, sem þýðir að við höfum meiri peninga til ráðstöfunar til kaupa á húsnæði. Kostnaður við húsnæðiskaup þarf líka að lækka, og þar er einn stærsti kostnaðarliðurinn auðvitað vextir."

„Þetta skrítna ástand þar sem verð helst hátt miðað við kaupmátt og mikið eignaframboð afhjúpar kostnaðinn við það að vera með eigið peningakerfi þar sem við erum rukkuð um hátt verð fyrir að binda fjármagn í eignum á borð við fasteignir. Daginn sem við förum út úr þessum háu vöxtum myndast svigrúm fyrir fasteignir til að hækka aftur í verði," segir Ársæll að lokum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×