Innlent

Telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr fiskeldi í Dýrafirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Dýrafirði.
Frá Dýrafirði. vísir/pjetur
Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr eldinu þar sem í dag fannst gat við botn kvíar.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þarna kunni að vera komin „meginskýringin á mögulegri slysasleppingu regnbogasilungs sem fjallað var um sl. haust þegar engin skýring fannst á því hvaðan regnbogasilungur væri upprunninn sem veiddist í ám á Vestfjörðum.“

Í kjölfar þess að regnbogasilungur veiddist í ánum var „leitað leitað mjög ítarlega skýringa með skoðun á öllum kvíum sem regnbogasilungur er ræktaður í og kom ekkert óeðlilegt í ljós. Meðal annars fannst ekkert óeðlilegt við skoðun kvía í Dýrafirði. Þess má t.d. geta að kvíanet eru hreinsuð með sérstakri netaþvottavél sem er búin myndavélum og slík hreinsun var framkvæmd á þessari tilteknu kví í síðasta mánuði og kom þá ekkert í ljós sem gaf til kynna að gat væri á netinu,“ að því er fram kemur í tilkynningu Arctic Sea Farm.

Gatið sem kom í ljós í dag fannst við slátrun upp úr kvínni og er alveg við botn hennar.

„Slátrun er ekki lokið en þegar hefur verið gripið til aðgerða með lokun gatsins en því miður er fyrsta mat starfsmanna það að umtalsvert magn regnbogasilungs sé sloppinn. Viðbragðsáætlun við slysasleppingu var virkjuð þegar í stað og var Fiskistofu gert viðvart, m.a. vegna samráðs um næstu skref.

Auk þess sem um umtalsvert tjón er að ræða fyrir fyrirtækið er hér um að ræða mikið áfall fyrir starfsmenn og eigendur sem vinna að uppbyggingu fiskeldis á Vestfjörðum.

Ljóst er að framundan er ítarleg greining á orsökum gatsins í samstarfi við Fiskistofu og MAST með það að markmiði að draga lærdóm af, m.a. varðandi kvíaútbúnað og fleiri þætti. Útbúnaður kvía er nú þegar í ítarlegri skoðun hjá fyrirtækinu þar sem m.a. er unnið að innleiðingu strangari krafna sem settar hafa verið af hálfu eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningu Arctic Sea Farm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×