Bíó og sjónvarp

Telja að Darcy hafi verið mjög ólíkur Colin Firth

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Colin Firth í hlutverki sínu sem Mr. Darcy í sjónvarpsþættinum Hroki og hleypidómar.
Colin Firth í hlutverki sínu sem Mr. Darcy í sjónvarpsþættinum Hroki og hleypidómar.
Vísindamenn hafa afhjúpað það sem þeir segja að sé fyrsta sögulega rétta myndin af bókmenntapersónunni Fitzwilliam Darcy en hann er ein aðalsöguhetjan í einni vinsælustu ástarsögu allra tíma, Hroka og hleypidómum eftir Jane Austen.

Breski leikarinn Colin Firth er ef til vill þekktastur fyrir ógleymanlega túlkun sína á Darcy í sjónvarpsþáttum sem BBC gerði eftir bókinni á 10. áratug síðustu aldar en miðað við það sem vísindamenn segja nú þá er Firth ekkert líkur Darcy eins og hann á að hafa litið út.

Þessi Mr. Darcy er ekkert sérstaklega líkur Colin Firth.UKTV/NICK HARDCASTLE
Í staðinn fyrir breiðar axlir er hann grannur og notar hárkollu en þar sem lítið er um lýsingar á Darcy í bókinni sjálfri studdust vísindamennirnir við straum og tísku 10. áratugar sem er sá tími sem sagan gerist.

„Það hvernig við sjáum Darcy endurspeglar algenga líkamsbyggingu karlmanna á þessum tíma. Þeir notuðu hárkollur og voru með granna kjálka en afgerandi kjálka,“ segir Amanda Vickery, prófessor í sagnfræði við Queen Mary-háskóla í London, í samtali við BBC.

Vöðvastæltir líkamar leikara á borð við Colin Firth og Matthew Macfadyen, sem farið hafa með hlutverk Darcy, hefðu á þeim tíma sem sagan gerist frekar verið einkennandi fyrir verkamenn heldur en hefðarmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×