Innlent

Telja að Bergvin hafi sýnt af sér dómgreindarleysi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélagsins.
Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélagsins. vísir/stefán
Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélagsins, sýndi af sér dómgreindarleysi þegar hann fékk félagsmann til þess að fjárfesta í félagi með sér og föður sínum, en vegna viðskiptasambandsins lýsti stjórn Blindrafélagsins yfir vantrausti á Bergvin þann 22. september síðastliðinn.

Þetta er mat sannleiksnefndar Blindrafélagsins sem fengin var til að fara yfir fara yfir og skila skýrslu um málið, en það er jafnframt niðurstaða nefndarinnar að stjórn félagsins hafi farið offari gegn Bergvini með viðbrögðum sínum. Í skýrslu nefndarinnar segir meðal annars:

„Svo virðist sem flestir stjórnarmenn hafi tekið ákvarðanir út frá verstu mögulegu niðurstöðu án þess að gefa Bergvini almennilegt tækifæri tl að útskýra sína hlið eða undirbúa sig fyrir fundinn 22. september.“

Sjá einnig: Formaðurinn sakaður um siðferðislegt dómgreindarleysi

Í skýrslunni er aðdragandi þess að stjórnin lýsti yfir vantrausti á Bergvin ítarlega rakinn. Kemur meðal annars fram að nánast frá upphafi formannstíðar Bergvins hafi mátt finna dæmi um árekstra sem upp komu á milli hans og annarra stjórnarmanna, sem og á milli hans og Kristins Halldórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins.

Þannig hafi til dæmis ítrekað verið kvartað undan því að Bergvin hafi farið inn á verksvið Kristins Halldórs, „auk þess sem hann tók skuldbindandi ákvarðanir fyrir hönd félagsins án samráðs við Kristin eða stjórn Blindrafélagsins,“ eins og segir í skýrslunni.

Það er því mat nefndarinnar að þessir ítrekuðu árekstrar hafi haft áhrif á harða afstöðu margra stjórnarmanna þegar mál félagsmannsins sem Bergvin hafði fengið með sér í viðskipti kom upp. Ljóst sé að sumir í stjórn Blindrafélagsins hafi borið afar takmarkað traust til Bergvins og „því má álykta að þeir hafi átt auðveldara með að trúa einhverju misjöfnu upp á formanninn.“

Sjá einnig: Bergvin hafnar ásökunum stjórnar Blindrafélagsins

Hins vegar sé það jafnframt ljóst af viðtölum sem sannleiksnefndin átti við aðila málsins að félagsmaðurinn „upplifði misnotkun í samskiptum sínum við Bergvin.“ Þá hafi flestir viðmælendurnir gert alvarlegar athugasemdir við þá leynd sem hvíldi yfir viðskiptasambandi formannsins og félagsmannsins.

Það er þó ekki mat nefndarinnar að Bergvin hafi rofið trúnað við stjórn Blindrafélagsins þegar hann stofnaði til viðskiptasambandsins. Hins vegar verður að ætla að á Bergvini „hvíli ríkari ábyrgð til að gæta að því að blanda ekki eigin hagsmunum við hagsmuni félagsmanna,“ eins og segir í skýrslunni.

Að mati sannleiksnefndarinnar sýnir málið að það þarf að skerpa á þeim leikreglum settar eru um þá sem gegna trúnaðarstörfum hjá Blindrafélaginu. Það þurfi að vera hafið yfir allan vafa að þeir sem kosnir séu til trúnaðarstarfa „séu ekki þátttakendur í fjármálavafstri annars staðar sem getur haft áhrif á störf þeirra fyrir félagið og blandi ekki einkahagsmunum við hagsmuni félagsmanna sem til þeirra leita.“

Skýrslu sannleiksnefndarinnar má nálgast í heild sinni hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×