Sport

Tekur Werdum skref í átt að þungavigtartitlinum í kvöld?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Werdum stóð á stól til að vera hærri en Volkov í vigtuninni í gær.
Werdum stóð á stól til að vera hærri en Volkov í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
UFC er með bardagakvöld í London í kvöld. Þetta er kvöldið sem Gunnar Nelson vonaðist til að berjast á gegn Darren Till í aðalbardaga kvöldsins en þess í stað fáum við þá Fabricio Werdum og Alexander Volkov.

Það hefði verið talsverð meiri spenna fyrir Íslendinga fyrir bardagakvöldið ef Gunnar hefði verið að berjast en því miður tókst ekki að finna andstæðing fyrir hann að þessu sinni. Aðalbardagi kvöldsins er þó spennandi þar sem fyrrum þungavigtarmeistari UFC mætir fyrrum þungavigtarmeistara Bellator.

Fabricio Werdum hefur ekki farið leynt með það að hann vill ólmur fá annan séns á þungavigtarbeltinu. Werdum var meistari árið 2015 en tapaði beltinu til ríkjandi meistara, Stipe Miocic. Síðan þá hefur hann unnið þrjá bardaga og tapað einum og telur sig eiga skilið að fá annan séns á beltinu. Til þess þarf hann að sigra Alexander Volkov sannfærandi í kvöld.

Volkov er ekki stórt nafn en hann var þungavigtarmeistari Bellator bardagasamtakanna árið 2012. Hinn 29 ára Volkov hefur unnið alla þrjá bardaga sína í UFC en kannski ekki fengið mikla athygli.

Með sigri hjá Volkov gætu átt sér stað ákveðin kynslóðaskipti í þungavigtinni. Hinn 29 ára Volkov er 11 árum yngri en Werdum og spurning hvort Werdum geti enn haldið í við þá ungu. Werdum hefur verið einn af fimm bestu þungavigtarmönnum heims undanfarin ár en Volkov getur komist í þann hóp með sigri á Werdum.

Werdum er þó ekkert á því að hætta og er sannfærður um að hann geti sigrað Stipe Miocic fái hann tækifæri til. Með sigri í kvöld getur Werdum tekið skref í átt að öðrum titilbardaga.

Bardagakvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í kvöld en bein útsending hefst kl. 21:00.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar samþykkti bardaga við Till

Bardagi Gunnars Nelson og Darren Till gæti orðið aðalviðburður UFC bardagakvöldsins í London sem fer fram í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×