Innlent

Tekur sex til átta ár að byggja nýjan Landspítala

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Það tekur sex til átta ár að byggja nýjan Landspítala á besta stað. Þetta segir formaður Samtaka um betri spítala á betri stað. Hann segir niðurstöðu stjórnvalda um að það muni tefja afhendingu spítalans um 10 til 15 ár að byggja annars staðar en við Hringbraut vera ranga og það sé ekki of seint að breyta um staðsetningu.

Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 nýverið að það myndi fresta afhendingu nýs Landspítala um 10 til 15 ár ef hann verður ekki byggður við Hringbraut. Þetta er niðurstaða athugunar Skipulagsstofnunar og Framkvæmdasýslu ríkisins sem heilbrigðisráðherra óskaði eftir og verður kynnt síðar í ágúst.

 

Hermann Guðmundsson, formaður Samtaka um betri spítala á betri stað.Vísir/skjáskot
Framkvæmdum við Hringbraut lokið eftir 12 ár

Formaður Samtaka um betri spítala á betri stað segir þessi niðurstöðu einfaldlega ranga. Margir Íslendingar átti sig ekki á því að reiknað sé með að framkvæmdum við byggingu Landspítala við Hringbraut verði ekki lokið fyrr en eftir 12 ár.

„Við teljum, og það er rökstutt með gögnum og samtölum við marga framkvæmdaaðila við spítalabyggingar erlendis, að það taki sex til átta ár að byggja nýtt sjúkrahús. Það er að frátalinni skipulagsvinnu og við höfum vissu fyrir því að skipulagsvinna á höfuðborgarsvæðinu getur tekið stuttan tíma,” segir Hermann Guðmundsson, formaður Samtaka um betri spítala á betri stað.

Hermann vísar til þess að búið sé að byggja marga nýja spítala í Noregi og Danmörku á síðustu árum og þar hafi framkvæmdatíminn verið fjögur til átta ár. Engin ástæða sé til að ætla annað en að það sama gildi hér.

„Ef að við tökum mark á bæjarstjóranum í Garðabæ, sem hefur boðist til að klára deiliskipulagsvinnu á einu ári við svona byggingu. Það er hægt að bjóða þetta út, það tekur kannski annað ár að undirbúa það. Ég myndi halda að innan átta ára væri búið að byggja og opna svona spítala,” segir Hermann.

Ekki góð hugmynd

Hann segir faglega og hlutlausa staðarvalsgreiningu aldrei hafa farið fram.

„Við viljum bara að það fari fram sérstök könnun á því hvar besta staðsetningin er á höfuðborgarsvæðinu fyrir þetta sjúkrahús vegna þess að við erum algjörlega sannfærð um að 240.000 fermetra sjúkrahús í Þingholtunum er ekki góð hugmynd,” segir Hermann.

Ekki of seint að breyta um staðsetningu

Deilt hefur verið um staðsetningu spítalans í um tvo áratugi. Þá er það vilji meðal annars heilbrigðisráðherra, borgarstjóra og framkvæmdastjórnar Landspítalans að spítalinn skuli byggður við Hringbraut. Í því samhengi er óhætt að spyrja – er þessu máli ekki einfaldlega lokið?

„Ég held ekki. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að halda áfram að byggja upp við Hringbraut. Það má ekkert tefja þær framkvæmdir. Við erum að hugsa auðvitað til áratuga. Við viljum sjá nýtt þjóðarsjúkrahús á besta hugsanlega stað í borginni. Þegar að búið er að framkvæma á Hringbraut allt sem að þar á að framkvæma fyrir 75-80 milljarða, að þá verðum við að hluta til með nýtt sjúkrahús og að hluta til með 80 ára gamalt sjúkrahús. Það er ekki sú framtíðarsýn sem að við viljum hafa,” segir Hermann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×