Heilsa

Tekur Kim Kardashian áskoruninni?

Rikka skrifar
visir/skjaskot
Svo virðist sem að hin bandaríska raunveruleikastjarna Kim Kardashian íhugi að taka áskorun heimildamyndarinnar Fed Up um að hætta sykri í 10 daga ef marka má Twitter færslu stjörnunnar fyrir skömmu.

Heimildarmyndin, sem framleidd er meðal annars af þekktustu fréttakonu bandaríkjanna Katie Couric, virðist vera að hafa mikil áhrif í heiminum. Myndin fjallar um þá ógn sem að stafar af ofneyslu sykurs og þá lífstílssjúkdóma sem að beintengja má við hana. 

Mikið hefur verið rætt um sykur og ofneyslu hans á Íslandi eftir áskorun Heilsuvísis á þjóðina með átakinu Sykurlaus september  og nú síðast í gær var viðtal við Dorrit Moussaief, forsetafrú þar sem að hún lýsti yfir áhyggjum sínum á ofneyslu sykurs og vildi stíga það skref að banna innflutning á sykri til landsins.

Tæplega sextíu þúsund manns hafa nú þegar tekið áskorun Fed up síðan myndin var frumsýnd í september síðastliðnum. Það virðist því sem að óhróður þessa óvin mannkynsins berist ansi víða og hratt um heiminn. 


Tengdar fréttir

Hin mörgu andlit sykurs

Sykur er góður, já við vitum það, en hann gefur líka fallega áferð, meiri fyllingu í matinn og sælutilfinningu eftir átið. Er það ekki hin fullkomna samsetning, ekki satt? Jú, því miður er það alveg hárrétt.

6 matartegundir með földum sykri

6 vinsælar matartegundir sem margir borða reglulega án þess að gera sér grein fyrir hversu mikið magn sykurs þeir eru að innbyrða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×