Körfubolti

Tekst Grindvíkingum loks að vinna KR í lokaúrslitum?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vísir//Daníel
Sem kunnugt er hefst rimma KR og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld, en flautað verður til leiks í DHL-höll þeirra KR-inga kl. 19:15.

Þetta er í þriðja sinn sem KR og Grindavík mætast í lokaúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta. Fyrsta rimma þeirra fór fram vorið 2000. Grindavík endaði í þriðja sæti Epson-deildarinnar (eins og efsta deild hét þá) og sló Keflavík og Hauka út á leið sinni í úrslitaeinvígið. KR-ingar höfnuðu hins vegar í fimmta sæti í deildinni og tryggðu sér sæti í úrslitunum með sigrum á Tindastóli og Njarðvík.

Grindavík tók forystuna í einvígi liðanna með 67-64 sigri á heimavelli, en KR svaraði fyrir sig með stórsigri, 83-55, í Vesturbænum. Fyrir einvígið var ljóst að KR-ingar þyrftu að vinna leik í Grindavík ef þeir ætluðu sér titilinn, og það tókst þeim í þriðja leiknum. Lokatölur urðu 89-78, KR í vil.

KR-ingar tryggðu sér svo Íslandsmeistaratitilinn, þann níunda í sögu félagsins, með 20 stiga sigri, 83-63, á heimavelli í leik fjögur. Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR-inga, var útnefndur besti leikmaður úrslitakeppninnar, en þjálfari Vesturbæinga var Ingi Þór Steinþórsson - sem gerði kvennalið Snæfells að Íslandsmeisturum í fyrsta skipti á dögunum - en hann var þarna á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari meistaraflokks.



Vísir/Daníel
KR og Grindavík mættust svo aftur níu árum seinna, árið 2009, í eftirminnilegri og frábærri úrslitarimmu. KR tefldi fram gríðarlega sterku liði á þessum tíma, en fyrir tímabilið höfðu þeir Jón Arnór Stefánsson, Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Már Magnússon snúið heim í Vesturbæinn úr atvinnumennsku. Þeir tveir fyrstnefndu höfðu verið í Íslandsmeistaraliðinu árið 2000, en þeir voru þá að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki.

KR varð deildarmeistari eftir að hafa unnið 21 af 22 leikjum sínum á tímabilinu, en líkt og í ár var Grindavík eina liðið sem tókst að vinna KR í deildarkeppninni. KR-ingar héldu svo uppteknum hætti í úrslitakeppninni og sópuðu Breiðabliki og Keflavík út. Grindvíkingar fóru sömuleiðis nokkuð örugglega í gegnum ÍR og Snæfell á leið sinni í úrslitaeinvígið.

KR vann fyrsta leikinn í DHL-höllinni 88-84, en Grindvíkingar jöfnuðu metin með tólf stiga sigri, 100-88, í leik tvö. Þeir tóku svo frumkvæðið í einvíginu með 107-94 sigri í DHL-höllinni, en Nick Bradford fór á kostum í leiknum og skoraði 47 stig.

KR-ingar náðu vopnum sínum á ný með 11 stiga sigri, 94-83, í Röstinni og því var ljóst að úrslitin myndu ráðast í oddaleik í Vesturbænum.

Oddaleikurinn var þrunginn spennu og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. KR-ingar leiddu nær allan leikinn, en Grindvíkingar voru aldrei langt undan og fengu möguleika til að vinna leikinn í lokasókn sinni. Þeim tókst hins vegar ekki að koma skoti á körfuna og KR-ingar fögnuðu því Íslandsmeistaratitlinum í annað sinn á þremur árum.

Benedikt Guðmundsson stýrði KR-ingum til beggja þessara Íslandsmeistaratitla, en honum til aðstoðar seinna árið var áðurnefndur Ingi Þór Steinþórsson.

Það kemur svo í ljós á næstu dögum hvort KR-ingar hafi betur í þriðja skiptið eða hvort Grindvíkingum takist að rjúfa hefðina og vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitill á jafnmörgum árum.

Vísir//Daníel
Vísir//Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×