Innlent

Teknir með fölsuð skilríki í Leifsstöð

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mennirnir, sem ferðuðust saman, kváðust hafa keypt skilríkin á 700 evrur hvort stykki
Mennirnir, sem ferðuðust saman, kváðust hafa keypt skilríkin á 700 evrur hvort stykki Mynd/Pjetur
Tveir einstaklingar voru teknir með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni. Um var að ræða fölsuð ítölsk kennivottorð samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Mennirnir, sem ferðuðust saman, kváðust hafa keypt skilríkin á 700 evrur hvort stykki. Lögreglan á Suðurnesjum handtók þá og voru þeir færðir á lögreglustöð til skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×