Handbolti

Tékkar unnu í vítakeppni

Úr leik Íslands og Tékklands sem Tékkar unnu ansi örugglega.
Úr leik Íslands og Tékklands sem Tékkar unnu ansi örugglega. vísir/eva björk
Tékkar náðu sautjánda sætinu á HM í handbolta eftir dramatískan sigur á Hvíta-Rússlandi.

Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi allan leikinn. Liðin héldust í hendur og það var ekki fyrr en í vítakeppni sem úrslit fengust.

Þar reyndust Tékkarnir vera sterkari og unnu leikinn 32-31.

Lokastaða neðstu liðanna á HM.

17. Tékkland

18. Hvíta-Rússland

19. Rússland

20. Bosnía

21. Íran

22. Sádi-Arabía

23. Síle

24. Alsír




Fleiri fréttir

Sjá meira


×