Innlent

Tekjutap vegna skattaskjóla hleypur á milljörðum króna

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Töflur unnar úr skýrslunni.
Töflur unnar úr skýrslunni.
Mögulegt tap ríkisins vegna skattaundanskota gæti numið allt frá 2,8 til 6,5 milljarða króna samkvæmt útreikningum starfshóps sem vann að skýrslu um aflandseignir Íslendinga og tekjutap hins opinbera. Skýrslan var birt í gær. Miðgildi mögulegs tekjutaps var reiknað 4,6 milljarðar og var miðað við gildandi lög um fjármagnstekjuskatt.

Hópurinn beitti einnig fimm öðrum aðferðum til þess að reikna tapið út og meta þær árlegt tap allt frá 4,9 til 15,5 milljarðar. „Um þrjár ólíkar gerðir mats er að ræða og því ekki við hæfi að gefa eina tölu sem líklegustu niðurstöðuna,“ segir í skýrslunni.

Aðferðirnar sem um ræðir eru aðferðir kenndar við Zucman, Henry og Oxfam auk danskrar og sænskrar útfærslu á matsaðferð Zucmans. Aðferðirnar eru útskýrðar með þeim hætti að niðurstöður Henrys og Oxfam lúti að þeim fjármunum „sem stjórnvöld kynnu að geta tekið til sín á alþjóðavísu ef unnt reyndist með samstilltum alþjóðlegum aðgerðum að skattleggja allt aflandsfé í heiminum“, þó á mismunandi hátt. Tölur Zucmans „byggja á álíka forsendum innbyrðis og gera ráð fyrir því að einnig mætti takast að koma böndum á skatta­sniðgöngu alþjóðlegra stórfyrirtækja“.

Þá er einnig tekið fram í skýrslunni að eignir metnar á um 350 til 810 milljarða króna hafi safnast saman á aflandssvæðum frá árinu 1990. Líklegasta talan á því bili er reiknuð 580 milljarðar króna. Þar af hafa 150 milljarðar safnast upp við milliverðlagningu, 230 með eigna­stýringu í Lúxemborg og 200 með óskráðum fjármagnstilfærslum.

Sagt er frá því í skýrslunni að fjöldi aflandsfélaga í eigu Íslendinga hafi fertugfaldast frá 1999 og fram að hruni. Þá hafi eignir í stýringu íslensku bankanna í Lúxemborg 46-faldast á sama tímabili. Sá banki sem var milliliður við stofnun flestra aflandsfélaga var Landsbankinn í Lúxemborg. Þau félög voru 298 eða nærri 51 prósent af heildinni. Milliliður á vegum Kaupþings, KV Associates, sá um stofnun 176 félaga, eða þrjátíu prósenta. Novator og Arena Wealth Management sáu svo um rúm átta prósent til viðbótar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×