Viðskipti innlent

Tekjur af sjónvarpi aukast

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, kynnti uppgjörið í morgun.
Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, kynnti uppgjörið í morgun. vísir/gva
Tekjur Vodafone af sjónvarpi halda áfram að hækka. Þetta kom fram á kynningarfundi fyrir uppgjör Vodafone á öðrum ársfjórðungi, en fundurinn fór fram í morgun.

Tekjur af sjónvarpi námu 413 milljónum núna en 365 milljónum á sama tíma í fyrra og nemur aukningin þrettán prósentum.

Mestu tekjurnar eru enn af farsíma, eða 1232 milljónir. Þær voru 1335 milljónir í fyrra og lækka því um 8%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×