Lífið

Tekjur af miðasölu á úrslit Söngvakeppninnar á níundu milljón króna

Birgir Olgeirsson skrifar
Uppselt er á lokakvöldið í Laugardalshöll þar sem Loreen og Sandra Kim koma fram.
Uppselt er á lokakvöldið í Laugardalshöll þar sem Loreen og Sandra Kim koma fram. Vísir/Getty
Áætla má að Ríkisútvarpið sé búið að selja miða á úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrir um níu milljónir króna. Tilkynning barst frá Ríkisútvarpinu í dag þar sem greint var frá því að uppselt væri á úrslitakvöldið sem fer fram í Laugardalshöll 20. febrúar næstkomandi.

Að sögn Heru Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra keppninnar, komast hátt í 2.500 manns í sæti í Laugardalshöllinni en nokkur hluti þeirra sæta fer til boðsgesta og því hafi rúmlega 2000 miðar verið seldir.

Hún var ekki tilbúin að gefa upp hvað Ríkisútvarpið áætlar í tekjur af þessari miðasölu. Miðarnir voru seldir á miðasöluvefnum Tix.is en þar kemur fram að miðaverð var frá 3.900 krónum til 4.900 króna. Sé tekið mið af því verði má áætla að meðal miðaverð hafi verið um 4.400 krónur. Sé gefið að 2000 miðar hafi selst má reikna með að tekjur séu um 8,8 milljónir króna.

Hera segir að tekjur af miðasölunni eiga að dekka þann kostnað sem hlýst af því að halda keppnina í Laugardalshöll, en mikið stendur til í tilefni af því að í ár eru þrjátíu ár frá því Söngvakeppni Sjónvarpsins hóf göngu sína. Munu til að mynda sigurvegarar söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þær Loreen og Sandra Kim, stíga á svið á úrslitakvöldinu. „Þetta verður náttúrlega að standa undir sér að einverju leyti en sem betur fer er það hægt og mögulegt að stækka viðburðinn og leyfa fleirum að vera með.“

Hún segir sölu á forkeppnirnar í Háskólabíó einnig ganga vel sem og sölu á lokaæfinguna í Laugardalshöll 20. febrúar næstkomandi sem er hugsuð sem tækifæri fyrir yngstu kynslóðina til að bera keppnina augum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×