Innlent

Tekist á strax á fyrsta degi Alþingis

Snærós Sindradóttir skrifar
Alþingi kom saman í dag á þingfund fyrir það sem verður eitt stysta þing í sögunni.
Alþingi kom saman í dag á þingfund fyrir það sem verður eitt stysta þing í sögunni. vísir/anton brink
Það var tekist á um ræðu forsætisráðherra þegar þing kom aftur saman í gær eftir sumarfrí. Í ræðu sinni sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra að engin trygging væri fyrir góðum horfum í efnahagsmálum. Þar skipti helst máli hver væri við stjórnvölinn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði forsætisráðherra sleppa því að minnast á hátt vaxtastig Seðlabankans sem nú eru 5,75 prósent og sagði hún aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa einkennst af því að passa upp á hina efnameiri og nefndi lækkun veiðigjalda á stórútgerðina í því samhengi.

Þessu svaraði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og var mikið niðri fyrir. „Menn nefna veiðigjöldin. Staðreyndin er sú að þessi ríkisstjórn hefur tekið á annan tug milljarða í veiðigjöld umfram það sem ríkisstjórn vinstri flokkanna gerði í fjögur ár.“

Þá var hart tekist á í óundirbúnum fyrirspurnatíma ráðherra en þar beindi Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingar, þeirri fyrirspurn til forsætisráðherra hvort hann gerði sér grein fyrir því að þeir tekjuhærri og þeir sem skulda mest hafi komið betur út úr skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar. Sigurður Ingi sagði sögunni snúið á haus, að aðgerðin hafi tekist afburðavel og benti á að eignir fólks í eigin húsnæði hafi vaxið um 45 prósentustig á starfstíma ríkisstjórnarinnar.

„Hver vildi ekki frekar vera í þeim sporum að eiga stærri hlut í sínu eigin húsnæði og borga minna til bankanna en að þurfa að treysta á að ríkið komi með vaxtabætur til að viðhalda þeirri snöru sem bankakerfið og kerfið sem slíkt býr við hefur búið til?“

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×