Enski boltinn

Tekinn tvisvar fyrir of hraðan akstur á sex mínútum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fæ ég far? Fellaini getur ekki keyrt lengur á æfingar.
Fæ ég far? Fellaini getur ekki keyrt lengur á æfingar. vísir/getty
Marouane Fellaini, leikmaður Man. Utd, er búinn að missa ökuskírteinið eftir að hafa líklega sett met með því að vera tekinn tvisvar á aðeins sex mínútum.

Fyrst var hann tekinn á 130 km/h þar sem mátti aðeins keyra á 65 km/h. Hann settist svo aftur upp í bílinn og litlum sex mínútum síðar var hann gripinn á 95 km/h þar sem aðeins mátti keyra á 50 km/h.

Þessi ofsakstur Belgans átti sér stað í maí og hann hefur nú misst ökuskírteinið í níu mánuði. Fellaini játaði brot sín en mætti ekki fyrir dóm.

Hann þurfti einnig að greiða 320 þúsund krónur í sekt vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×