Innlent

Tekinn sama dag og hann fékk bílprófið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af ungum ökumanni vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá hafði fengið bílprófið sama dag en sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hans á fíkniefnum.

Þá var annar ökumaður stöðvaður í vikunni en hann hafði neytt amfetamíns og kannabisefna samkvæmt niðurstöðum sýnatöku.

Alls voru sjö ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar. Öll brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 kílómetra hraða. Þá voru nokkrir ökumenn staðnir að öðrum umferðarlagabrotum, svo sem að nota ekki bílbelti, tala í síma án handfrjálss búnaðar og sviptingarakstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×