Tónlist

Teitur með tónleika á Dubliner

Stefán Árni Pálsson skrifar
Teitur hefur slegið í gegn að undanförnu.
Teitur hefur slegið í gegn að undanförnu. vísir
Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon verður með tónleika á Dubliner á laugardagskvöldið og mun hann þar spila frumsamin lög í bland við þekkt lög úr íslensku tónlistarsögunni.

Uppákoman hefst fljótlega upp úr ellefu og í kjölfar tónleikanna mætir Arnljótur vinur hans úr Ojba Rasta á svæðið og þeir félagarnir DJ'a fram á rauða nótt.

Ekkert kostar á tónleikana og má búast við mikilli stemningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×