Viðskipti erlent

Teiknuð tilgáta af iPhone 6

Samúel Karl Ólason skrifar
Nýju símarnir eru sagðir stærri en fyrri símar Apple.
Nýju símarnir eru sagðir stærri en fyrri símar Apple. Vísir/GraphicNews
Hér að ofan má sjá samantekt Graphic News á helstu orðrómum og lekum um útlit og gæði iPhone 6 símanna. Talið er að 4,7 tommu símar muni koma á markaði þann 9. september, en 5,5 tommu símar seinna.

Þar má sjá að símarnir eru taldir verða stærri en Apple hefur áður sent frá sér og jafnframt þynnri. Þá verður on/off-takkinn færður á hlið símans svo auðveldara verði að ná til hans.

Þá segir sagan að myndavél símans verði uppfærð, sem og skjárinn. Sömu sögu er að segja af örgjafa símans, sem er nú hraðvirkari en áður.

Frekari upplýsingar má sjá á kortinu hér að ofan, sem er á ensku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×