Tíska og hönnun

Teiknismiðja fyrir alla fjölskylduna

Marín Manda skrifar
Vinkonurnar Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir sköpuðu ævintýraheiminn Tulipop.
Vinkonurnar Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir sköpuðu ævintýraheiminn Tulipop.
Vinkonurnar Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir eru eigendur Tulipop en þær slá upp teiknismiðju fyrir börn og foreldra þeirra um helgina sem lið í Hönnunarmars.

„Það er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að leggja leið sína til okkar á Hverfisgötu 39 á laugardaginn á viðburðinn okkar hjá Tulipop á Hönnunarmars. Við munum frumsýna nýja vörulínu sem inniheldur fullt af spennandi nýjungum en einnig munu börnin fá skapandi Tulipop-teiknibækur og leiðsögn við að skapa sínar eigin teikningar,“ segir Helga Árnadóttir, annar eigandi Tulipop.

Ævintýraheimurinn Tulipop var skapaður af vinkonunum Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönnuði og teiknara, og Helgu Árnadóttur, tölvunarfræðingi og MBA. Markmið þeirra var að búa til fallegar vörur fyrir börn sem höfða til fólks á öllum aldri. Fyrirtækið var stofnað í byrjun árs 2010 og er Tulipop-vörulínan í dag seld í fjölda verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu í átta löndum utan Íslands.

Vörulína Tulipop inniheldur margt fallegt fyrir börnin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×