Lífið

Teiknar myndir af kattardýrum í útrýmingarhættu

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Gunnar skoðaði uppruna dýranna sem hann teiknar.
Gunnar skoðaði uppruna dýranna sem hann teiknar. Vísir/Stefán
„Það besta sem kom fyrir mig í sambandi við listina er að ég get unnið í friði án þess að fá truflanir utanfrá. Það er kosturinn við að vera heyrnarlaus. Svo hef ég augu sem ég sé og skynja með,“ segir myndlistamaðurinn Gunnar Snær Jónsson eða Gison Snaer, en hann hefur verið heyrnarlaus frá fæðingu.

Hann opnaði í gær fyrstu myndlistarsýningu sína, Gleym mér ey, þar sem hann vinnur með dýr í útrýmingarhættu. „Í þetta sinn nota ég dýr, þar sem ég er mikill dýravinur. Ég hef alltaf verið meðvitaður um dýr í útrýmingarhættu og ég fékk í hjartað að ímynda mér að þessi fallegu dýr munu brátt hverfa þar sem ekki er hugsað nógu vel um þau,“ segir hann.

Í framhaldinu fór hann að skoða undirtegundir kattardýra sem eru í útrýmingarhættu og komst að því að flestar tegundir voru í hættu. „Ég fann nokkrar tegundir sem ég vildi nota í listaverkin mín og kannaði margskonar mynstur af upprunalandi þeirra til að endurtúlka menningu sem þessi dýr eiga rótgróin part í.

„Markmiðið er svo að fá fólk til að finna fyrir tengslum við þessi dýr, því þessi dýr eru að hverfa, þess vegna heitir sýningin “Gleym mér ei.” því við ættum aldrei að gleyma dýrunum,“ bætir hann við. Í verkunum notast Gunnar aðeins svart og hvítt, nema í augum og nefi dýranna.

„Ég nota litina táknrænt fyrir persónuleika þeirra, því þau eru ekki bara hlutur heldur dýr með persónuleika og tilfinningar eins og við. Þó þú þekkir tígrisdýr í sjón, hefur þú velt fyrir þér persónueinkenni þeirra og hvort þið gætuð verið sálufélagar. Kannski vill svo til að áhorfendur finni eitt af kattadýrunum sem minnir þau á sjálfa sig og þar með gleyma þeim aldrei. Þetta var ég með í huga þegar ég gerði verkin,“ segir hann.

Sýningin er á veitingastaðnum Coocoo‘s Nest á Grandagarði og verður opin til 31.mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×