Menning

Teiknar fræga einstaklinga í Paint-forritinu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Sölvi sést hér með nokkrar myndir í bakgrunni.
Sölvi sést hér með nokkrar myndir í bakgrunni. Vísir/Stefán
„Þetta byrjaði allt bara í gríni á Skype, ég var að spila tölvuleiki með vini mínum og við þurftum eitthvað að bíða svo ég byrjaði teikna vin minn,“ segir Sölvi Smárason sem birtir myndirnar sem hann teiknar á Facebook-síðunni SövliArt.

„Ég byrjaði bara á því að teikna einhverja vini mína og gerði einhverjar tvær til þrjár myndir. Í sumar byrjaði ég aftur að teikna og þá fór þetta frekar mikið af stað, sem kom mér á óvart.“

Myndir Sölva eru allar gerðar í teikniforritinu Paint og hefur hann síðastliðna mánuði teiknað fjölmarga þekkta einstaklinga, aðallega Íslendinga.

„Ég teiknaði bara fyrst með tölvumúsinni af því ég var ekki með neina græju í fyrstu myndunum. Ég var frekar lengi að teikna þær myndir. Svo í ágúst eða september keypti ég mér teikniborð,“ segir hann og hlutirnir ganga því hraðar fyrir sig núna.

Hann segist þó aldrei hafa stefnt á að verða listamaður.

„Þetta var allt bara svona fyrir slysni,“ segir hann glaður í bragði: „Ég hef alltaf haldið að ég teiknaði frekar illa.“

Í nóvember var haldin listasýning í ungmennahúsinu Íbúðinni þar sem myndir Sölva voru meðal annara verka til sýnis en hægt er að skoða myndirnar á facebook.com/sovliart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×