Sport

Teiknaði stundina þegar Gunnar sigraði Cummings

Gunnar Nelson fyrir utan O2 höllina þar sem hann barðist við Zak Cummings.
Gunnar Nelson fyrir utan O2 höllina þar sem hann barðist við Zak Cummings. Vísir/Friðrik Þór
Skemmtilegar teikningar birtust á samskiptamiðlinum Twitter eftir Chris Rini af Gunnari Nelson í bardaga hans gegn Zak Cummings á dögunum.

Eins og frægt er mættust Gunnar og Zak í Dublin laugardaginn 19. júlí í og eftir jafna fyrstu lotu náði Gunnar yfirhöndinni í annari lotu og hengdi Cummings undir lok lotunnar.

Hegðun Gunnars sem er hinn rólegasti fyrir bardaga hefur vakið gríðarlega mikla athygli og er hann smátt og smátt að verða vinsælli í UFC-heiminum. Hefur sérstakur bardagastíll hans vakið mikla athygli.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×