Sport

Tebow hitti loksins boltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tebow og kylfan hafa ekki alveg náð nógu góðu sambandi enn sem komið er.
Tebow og kylfan hafa ekki alveg náð nógu góðu sambandi enn sem komið er. vísir/getty
Hafnaboltaferill Tim Tebow náði loks smá flugi í gær er hann hitti loksins boltann í leik.

Hann reyndi fyrir sér fjórum sinnum í leiknum og náði að hitta einu sinni. Hann er núna 1 af 16 í tilraunum sínum með kylfuna.

Sérfræðingur segir að sveiflan hjá Tebow sé of löng og hann les flot boltans einnig frekar illa. Sérfræðingurinn segir að hann hlaupi líka vitlaust inn á vellinum. Greinilega mikið rúm fyrir bætingar hjá Tebow.

Tebow var hafnaboltastjarna í menntaskóla og það mun líklega taka hann tíma að ná takti. NY Mets samdi við hann og Tebow spilar með einu af liðum Mets sem heitir Scottsdale Scorpions.


Tengdar fréttir

Tebow mættur til æfinga hjá Mets

Íþróttaundrið Tim Tebow hóf í dag æfingar hjá hafnaboltaliði NY Mets en hann gerði sér lítið fyrir og skipti um íþrótt á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×