Sport

Tebow byrjaði hafnaboltaferilinn með stæl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tebow á vellinum með Mets. Sumir efast um nýjasta kraftaverkið.
Tebow á vellinum með Mets. Sumir efast um nýjasta kraftaverkið. vísir/getty
Kraftaverkin hafa elt hinn trúaða Tim Tebow á íþróttaferlinum og hann er enn að í kraftaverkabransanum.

Tebow lék í gær sinn fyrsta æfingaleik síðan hann gerðist hafnaboltamaður og samdi við NY Mets.

Hann tók sér kylfu í hönd, steig upp og sló boltann út fyrir girðinguna [home run] í fyrstu tilraun. Ótrúlegt og jafnvel kraftaverk myndu einhverjir segja.

Aðeins Tim Tebow getur byrjað svona en þessi fjölhæfi iþróttamaður fékk þarna draumabyrjun á nýju ævintýri.

Sjá einnig: Ótrúlegar trúartengdar tilviljanir

Líkt og með frelsarann forðum þá vantar ekki efasemdarmennina. Vice Sports trúir því ekki að Tebow hafi byrjað á þennan ótrúlega hátt og er með samsæriskenningar um að enginn sem tók myndbandið upp sé með myndband af boltanum fara út fyrir völlinn.

Skemmtileg samsæriskenning sem má lesa meira um hér. Hinir trúuðu munu aftur á móti halda áfram að gleðjast með sínum manni.

Að neðan má lesa eldri grein um fyrrum kraftaverk Tebow.


Tengdar fréttir

Messías lentur í Klettafjöllunum

NFL-leikstjórnandinn Tim Tebow er mjög óvænt orðinn ein stærsta stjarnan í bandarísku íþróttalífi. Þessi strangtrúaði drengur hefur þaggað niður í nær öllum sérfræðingum. Þeim finnst flestum að hann geti ekki neitt. Þrátt fyrir það framkallar Tebow kraftaverk í nær hverjum leik og getur ekki hætt að vinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×