Lífið

Taylor Swift tilkynnir um væntanlega plötu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Síðasta plata söngkonunnar, 1989, kom út árið 2014.
Síðasta plata söngkonunnar, 1989, kom út árið 2014. Taylor Swift
Söngkonan Taylor Swift tilkynnti, á samskiptamiðlinum Twitter, um væntanlega plötu. Reputation kemur út 10 nóvember og er hún sjötta plata söngkonunnar. Út frá umslagi plötunnar að dæma virðist söngkonan hafa gert fjölmiðlafár og mannorð að umfjöllunarefni í lögum sínum. Á umslaginu er Swift með blaðaúrklippur sem þekja hálft andlit hennar.

Taylor Swift hefur átt í illdeilum við stjörnuparið Kanye West og Kim Kardashian. Netverjar, margir hverjir, velta því fyrir sér hvort heiti plötunnar sé vísun í deilurnar.

Á dögunum vakti Swift undrun meðal fylgjenda sinna því hún tók upp á því að eyða öllum myndum út af Instagram og auk þess eyddi hún öllum tístum síðastliðinna sjö ára, 85,4 milljón fylgjendum hennar til mikils ama.

Í kjölfar samfélagsmiðlahreinsunarinnar miklu komst hávær orðrómur á kreik um að þetta væri fyrirboði nýrrar plötu. Netverjar virðast hafa haft á réttu að standa miðað fréttir dagsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×