Lífið

Taylor Swift það eina sem getur huggað litla stelpu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Líðan Rosie fyrir lag og á meðan því stendur.
Líðan Rosie fyrir lag og á meðan því stendur. mynd/skjáskot/getty/
Rosie er sex mánaða gömul stelpa. Líkt og öll önnur lítil börn á hún það til að verða eilítið hnuggin öðru hvoru. Leiðin til að hughreysta hana á ný er nokkuð einföld, foreldrarnir þurfa eingöngu að setja lagið Blank Space með Taylor Swift á. Söngkonan sjálf hefur deilt myndbandi af þessu og sagt að það sé það krúttlegasta sem hún hefur séð.

Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að stöðvi lagið brestur stelpan í grát á nýjan leik. Það er því vonandi að foreldrunum líki Taylor Swift því ellegar eru þau föst milli steins og sleggju.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×