Lífið

Taylor Swift leikur í Girls

Taylor Swift fær hlutverk í sjónvarpsþáttunum Girls.
Taylor Swift fær hlutverk í sjónvarpsþáttunum Girls. Vísir/Gettyimages
Söngkonan Taylor Swift tekur að sér hlutverk í sjónvarpsþáttunum vinsælu Girls

Höfundur þáttana og ein aðalleikkonan, Lena Dunham, hefur verið að suða í Swift lengi um að koma fram í þáttunum en þær eru vinkonur. Ef vel gengur er möguleiki að hlutverk Swift verði stærra og hún komi frá í fleiri en einum þætti. Einnig mun söngkonan vinsæla semja tónlist fyrir þættina. 

Besta vinkona Swift, fyrirsætan Cara Delevingne, er einnig mikill aðdáandi þáttana og ku Swift hafa beðið Dunham um að hafa hana líka í huga fyrir aukahlutverk í næstu seríu af Girls. 

Dunham hefur áður látið hafa það eftir sér að hún hlusti á tónlist Swift er hún semji þættina sem hafa slegið í gegn út um allan heim. 


Tengdar fréttir

Íslendingur ruddist upp á svið til Taylor Swift

Það varð uppi fótur og fit á tónleikum poppstjörnunnar Taylor Swift á laugardagskvöldið þegar hún tróð upp í O2 höllinni í London. Þegar hún hafði nýlokið við síðasta lag kvöldsins ruddist ungur maður upp á svið til hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×