Íslenski boltinn

Taskovic í Grafarvoginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Taskovic og Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, handsala samninginn.
Taskovic og Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, handsala samninginn. mynd/fjölnir
Igor Taskovic skrifaði í kvöld undir samning við Fjölni um að leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Taskovic kemur til Fjölnis frá Víkingi R. sem hann lék með um fjögurra ára skeið.

Taskovic spilaði fyrst með Víkingi í 1. deildinni 2013 en síðustu þrjú tímabil lék hann með liðinu í Pepsi-deildinni, alls 60 leiki. Hann var lengi vel fyrirliði Víkings.

Taskovic, sem er 35 ára gamall Serbi, getur bæði leikið á miðjunni og sem miðvörður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×