Lífið

Táraflóð í BGT: Hin 14 ára Jasmine Elcock kom sá og sigraði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegt atriði
Ótrúlegt atriði
Jasmine Elcock varð 14 ára á dögunum og mætti hún í áheyrnarprufu í hæfileikaþáttinn Britain´s Got Talent á dögunum.

Elcock tók mjög rólega útgáfu af laginu Believe með Cher og sló dauðaþögn á salinn á meðan hún flutti lagið.

Anthony McPartlin og Declan Donnelly, betur þekktir sem Ant & Dec, eru kynnar í þáttunum og var flutningurinn það fallegur að tilfinningarnar báru Ant ofurliði. Það sama má segja um Alesha Dixon, einn af dómurum BGT, en hún fór að hágráta.

Þegar lagið var búið stóðu allir dómararnir upp og klöppuðu fyrir Elcock og hlupu síðan Ant og Dec að dómaraborðinu og ýttu á gullhnappinn. Hér að neðan má sjá þennan magnaða flutning en þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×