Tapað af fagmennsku

Fréttablaðið Fastir pennar 06. febrúar 2012 08:00
Guðmundur Andri Thorsson.
Guðmundur Andri Thorsson.
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tókst þeim að tapa 480 milljörðum króna. Þegar maður les viðbrögð forsvarsmanna sjóðanna mætti ætla allt hafi það tap verið innt af hendi af frábærri fagmennsku og trúmennsku. Nánast eins og allt hafi verið samkvæmt þrauthugsaðri áætlun. Þeir segja líka að þeir hafi vitað allt sem í skýrslunni stendur, ekkert komi þar á óvart – með öðrum orðum: hér er allt undir kontról. Fariði bara að rífast aftur um símaskrána.


"Viðskiptavild“
En svo muna þeir eftir því hvað það er mikilvægt að vera auðmjúkur og segja: En að sjálfsögðu munum við læra af þessu.

Og ekki að efa að einhver þeirra hefur í viðtali farið með eftirlætissetningu hrunmanna: það er auðvelt að vera vitur eftir á. (Er það ekki annars bjálfalegasta setning gjörvallrar íslenskrar tungu? Menn sem kjörnir eru til trúnaðarstarfa og þiggja fyrir það há laun eiga að vera vitrir fyrirfram en ekki eftir á.)
Megnið af þessari tapupphæð tengist útrásarfyrirtækjunum alræmdu og fjáraustri lífeyrissjóðanna í dauðadæmd bólufyrirtæki á borð við FL-group og Exista (sem ennþá á fyrirtækið já.is sem gerði sig að fífli í vikunni með plástrinum á símaskrána).

Þar vakna eðlilega spurningar um tengsl stjórnarmanna þessara almannasjóða við slíkt aflendingafyrirtæki og afskriftameistara íslensku bankanna – ferðalög og gýligjafir og aðra „viðskiptavild"; þau óformlegu samskipti sem íslenskir viðskiptamenn tömdu sér á hrunárunum og verða kannski illrekjanleg. Um þetta er því miður ekkert fjallað í téðri skýrslu. En getum við ekki bókað það að töluvert af lífeyri landsmanna hafi ratað í aflöndin á reikningana hjá öðrum ránsfeng?

Lífeyrissjóðirnir geyma peninga íslensks launafólks. Þetta eru peningar sem sóttir eru til íslenskra launamanna – og oft af miklu harðfylgi. Þetta er skattheimta, sem við höfum ekkert um að segja hvernig ráðstafað er, nema við erum fullvissuð um að sú ráðstöfun miðist við bestu hugsanlega ávöxtun. Við erum fullvissuð um að fagleg sjónarmið ráði för þegar lífeyrissjóðirnir neita að taka þátt í skuldaleiðréttingum. Fagleg já. Miklum fjárhæðum var hent í Glitni eftir að fyrir lá hvert stefndi – en það var að sjálfsögðu eingöngu til að fá bestu hugsanlegu ávöxtun. Við eigum að trúa því að viturlegt hafi verið að taka þátt í ævintýrum Hannesar Smárasonar og Bakkabræðra. Við eigum að trúa og treysta.


Hver kaus hann?
Með vissu millibili fáum við að sjá Arnar Sigurmundsson, sem virðist einhvers konar keisari í þessu kerfi, koma í sjónvarpið til þess að tilkynna okkur um ákvarðanir sínar og sinna manna um það hvað beri nú að gera í landinu; hvaða vegi skuli leggja og hvaða göng skuli sprengja – og hver ekki – og maður hugsar: Hver kaus hann? Er þetta ekki formaður samtaka fiskvinnslustöðva? Af hverju ræður hann yfir lífeyrissjóðunum?

Helgi Magnússon stjórnarformaður í Lífeyrissjóði verslunarmanna er annað gott dæmi um þá menn sem þarna hafa komist til valda og áhrifa; sú glögga og stálminnuga Lára Hanna Einarsdóttir rifjaði upp á dögunum á bloggsíðu sinni grein sem hann skrifaði seint á síðasta ári þar sem hann rómaði mjög skattastefnuna í Rússlandi og þær jafnaðarhugmyndir sem liggja til grundvallar þjóðfélagsuppbyggingunni þar og en taldi skattheimtu að hætti norrænna landa vera argasta sósíalisma. Þetta var eins og skrifað af frambjóðanda Repúblíkanaflokksins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.

Auðvitað er fínt að umsvifamikill fjárfestir á borð við Helga Magnússon deili með okkur sýn sinni á samfélagið – sem er sú að auðmenn eigi að græða og gera það sem þeim sýnist við sína nokkurn veginn skattfrjálsu tekjur – en maður spyr sig óneitanlega þeirrar spurningar hvort ráðlegt sé að maður með slík viðhorf og slíkan samfélagsþroska hafi svo mikið að segja yfir þeim peningum sem teknir eru af okkur launafólki.

Það má vera rétt sem þeir láta á sér skilja helstu talsmenn þessa kerfis, að þessum fimmhundruð milljörðum hafi verið tapað af geysilegri þekkingu og fagmennsku. Jafnvel að allt hafi þetta verið með ráðum gert.

Sjálfur verð ég þó að segja, að ég væri til í að fá sjálfur til umráða það fé sem þessir sjóðir taka af mér og setja það í Lottóið – kæmi það ekki betur út?

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Tapað af fagmennsku