Körfubolti

Tap hjá Helenu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Lið Helenu Sverrisdóttir tapaði fyrsta leiknum í einvígi sínu um bronsverðlaun ungversku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

DVTK Miskolc tapaði fyrir Uniqa Soprot, 79-67, og skoraði Helena tvö stig á fjórtán mínútum í leiknum. Bæði stigin komu af vítalínunni en hún tók þar að auki þrjú fráköst í leiknum.

Miskolc, sem varð deildarmeistari í vor, tapaði fyrir Pecsi í undanúrslitunum og leikur því um þrijða sætið.

Næsti leikur Miskolc fer fram á laugardaginn þar sem Helena og félagar geta knúið fram oddaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×