Enski boltinn

Tap hjá Gylfa og félögum gegn nýliðunum

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Swansea sem tapaði 2-0 fyrir Hull á heimavelli í dag.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Shaun Maloney kom Hull yfir á 79. mínútu. Abel Hernandez tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma.

Eftir góðan sigur í fyrstu umferð var ekki sama uppi á teningnum hjá Gylfa og félögum í dag, en þeir eru með þrjú stig.

Stjóralausir Hull-menn eru með sex stig eftir fyrstu tvo leikina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×