Viðskipti erlent

Táningar hverfa af Tinder

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Táningar geta kvatt vini sína á Tinder yfir helgina en í næstu viku er gamanið búið.
Táningar geta kvatt vini sína á Tinder yfir helgina en í næstu viku er gamanið búið. Vísir/Getty
Stefnumótasmáforritið Tinder hefur ákveðið að banna notendur á táningsaldri. Smáforritið hefur notið mikilla vinsælda síðan það var fyrst kynnt til sögunnar árið 2012.

Tinder er, fyrir þá sem ekki þekkja, stefnumótaforrit þar sem notandi getur sýnt áhuga sinn á öðrum notanda. Þó mun hinn aðilinn aldrei vita af áhuganum nema sá hinn sami lýsi einnig yfir áhuga á móti. Eftir að báðir hafa lýst yfir áhuga geta þeir spjallað saman og í kjölfarið mælt sér mót.

Þangað til nú hafa táningar á aldrinum þrettán til sautján ára getað nýtt sér smáforritið. Táningarnir gátu spjallað við fólk á aldursbilinu þrettán til sautján. Nú hefur Tinder ákveðið að taka fyrir þetta og kveður það vera vegna ábyrgðarskyldu sinnar. Tinder er að ganga í gegnum mat núna á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins og telja stjórnendur þetta vera rétta skrefið til framtíðar.

Notendur á táningsaldri eru um þrjú prósent allra notenda smáforritsins. Breytingin tekur gildi í næstu viku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×