Handbolti

Tandri skoraði fjögur í öðrum sigri Ricoh í vetur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tandri Már skoraði fjögur.
Tandri Már skoraði fjögur. vísir/valli

Tandri Már Konráðsson var einn af markahæstu leikmönnum Ricoh þegar það sótti góðan og dýrmætan sigur í greipar HK Aranäs í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Ricoh, sem var aðeins búið að vinna einn leik fyrir kvöldið, vann þriggja marka sigur, 24-21, en staðan í hálfleik var 15-10 fyrir gestina.

Tandri Már skoraði fjögur mörk úr átta skorum í leiknum, þar af síðasta mark leiksins sem innsiglaði sigurinn. Magnús Óli Magnússon komst ekki á blað.

Ricoh lyfti sér upp í ellefta sæti deildarinnar með sigrinum en það er jafnt Skövde með fjögur stig. Aranäs er með tvö stig og Drott er á botninum með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×